Opinn samningafundur í Iðnó

20. 01, 2020

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur tilkynnt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að Efling muni ekki eiga frekari viðræður við samninganefnd borgarinnar umfram það sem lög krefjast. Samninganefnd Reykjavíkurborgar dreifði villandi upplýsingum til fjölmiðla af samningafundi hjá Ríkissáttasemjara um samningstilboð Eflingar sem lagt var fram 16. janúar síðastliðinn og braut þannig bæði trúnað og lög.Samninganefnd Eflingar krefst þess að kjaraviðræður við borgina fari héðan af fram fyrir opnum tjöldum. Þannig er brugðist eðlilega við trúnaðarbroti embættismanna borgarinnar og tryggt að rétt sé farið með kröfur Eflingar.Efling boðar til opins samningafundar í Iðnó á miðvikudaginn 22. janúar klukkan 13:00 þar sem samninganefnd Eflingar mun kynna tilboð sitt til borgarinnar um sanngjarnan og farsælan kjarasamning sem gildi til loka árs 2022.Í bréfinu til borgarstjóra segir að Sólveig Anna og samninganefnd Eflingar krefjist þess að Dagur, sem æðsti yfirmaður starfsmanna borgarinnar, axli pólitíska ábyrgð á framgöngu samninganefndar borgarinnar, á þeirri stöðu sem upp er komin í viðræðum vegna þeirra, og á því verkefni að kjaramál félagsmanna Eflingar hjá borginni verði leyst með boðlegum hætti.Í tilboðinu sem kynnt verður á miðvikudag er fallist á sömu taxtahækkanir og samið var um á almennum vinnumarkaði í apríl síðastliðnum, auk þess sem krafist er nauðsynlegrar og tímabærrar leiðréttingar á láglaunastefnu borgarinnar. Auk þess munu félagsmenn Eflingar hjá borginni veita innsýn í aðstæður sínar og kjör. Á fundinum er borgarstjóra boðið að eiga viðræður við samninganefnd Eflingar og bregðast þar við tilboði hennar. Fullt gagnsæi verður um allt sem fram fer á þeim fundi.Á þriðjudag mun birtast í dagblöðum opið bréf samninganefndar Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg til Dags B. Eggertssonar, en atkvæðagreiðsla um verkfall 1800 félagsmanna Eflingar hjá borginni hefst á hádegi sama dag.Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu munu allir starfsmenn Eflingar hjá borginni fara í verkfall í byrjun febrúar á völdum dagsetningum og í ótímabundið verkfall frá 17. febrúar.Bréf til borgarstjóra.