Fullt út að dyrum á samstöðufundi Eflingar í Iðnó

18. 02, 2020

Fullt var út að dyrum í Iðnó í gær á samstöðu- og baráttufundi Eflingar. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður og fleiri félagsmenn Eflingar tóku til máls og hljómsveitirnar Eva og Silkikettirnir léku tónlist. Fólk lét í sér heyra og ljóst að baráttuhugur er mikill.Í lok fundar steig Lúðrasveit verklýðsins á svið og leiddi mannfjöldann út í ráðhús undir kraftmiklum lúðrablæstri.