Greiðsla úr vinnudeilusjóði fyrir 24.-28. febrúar

27. 02, 2020

Félagsmenn starfandi hjá Reykjavíkurborg þurfa sérstaklega að sækja um greiðslu úr vinnudeilusjóði vegna verkfalla dagana 24.-28. febrúar. Hægt verður að sækja um rafrænt á heimasíðu Eflingar frá föstudeginum 28. febrúar. Til þess að fá greitt um mánaðarmótin mars/apríl þarf að vera búið að sækja um greiðsluna fyrir 3. mars.Félagsmönnum er jafnframt bent á að ef verkföll halda áfram þarf að sækja um aftur. Þeir sem ekki hafa sótt um vegna tímabilsins 17.-21. febrúar þegar ný umsókn tekur gildi þann 28. febrúar þurfa að hafa samband við skrifstofu Eflingar þar sem ekki verður hægt að sækja um rafrænt fyrir fyrrnefnt tímabil.Greiðsla fyrir launatap vegna verkfalls dagana 24., 25., 26., 27. og – 28. febrúar verður 18.000 kr. á dag miðað við fullt starf, annars greitt í samræmi við starfshlutfall, t.a.m. eru greiddar 9.000 kr. á dag fyrir 50% starf.