Skattframtalið – skráning er hafin í aðstoð við gerð skattframtala

Efling-stéttarfélag mun í ár sem fyrr bjóða félagsmönnum uppá aðstoð við gerð skattframtala. Félagsmenn geta pantað tíma í síma 510 7500.Gert er ráð fyrir einföldum framtölum, en ef um flóknari framtöl er að ræða svo sem um kaup og sölu eigna þarf að tilgreina það sérstaklega. Aðstoðin við skattframtölin miðast við félagsmennog maka þeirra. Geta skal fjölda skattframtala þegar tími er pantaður. Nauðsynlegt er að hafa veflykil meðferðis í viðtalið.Aðstoðin verður veitt laugardaginn 7. mars og  sunnudaginn 8. mars ef þörf er á. Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu félagsins og bóka sig sem fyrst. Það er lögmaður Eflingar, Karl Ó. Karlsson hjá LAG lögmönnum, sem hefur umsjón með aðstoðinni við skattframtölin.Á skrifstofu Eflingar má fá allar nánari upplýsingar um viðtalstíma og gögn sem hafa þarf meðferðis í viðtalið.