Vel tekið á móti verkfallsvörðum og mikil samstaða

Verkfallsvakt Eflingar varð aðeins vör við eitt verkfallsbrot á fyrsta heila verkfallsdegi félaga í stéttarfélaginu hjá Reykjavíkurborg síðastliðinn fimmtudag, 6. febrúar. Verkfallsbrotið fólst í ólögmætri sameiningu deilda á leikskóla og hefur brotið verið tilkynnt stjórnendum Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.Verkfallsvaktin fór út í 5 hópum og heimsótti um 80 vinnustaði Reykjavíkurborgar þennan fyrsta verkfallsdag. Þá var litið inn á nokkra vinnustaði um kvöldið. Í verkfallsvakt er starfsfólk Eflingar ásamt félagsfólki í verkfalli sem boðið hefur fram krafta sína.Sex staðir voru lokaðir, leikskólar og félagsmiðstöðvar, skert þjónusta var á flestum leikskólum og starfstöðum sem ekki voru með undanþágur. Verkfallsvarsla fór ekki í eftirlit í íbúakjarna eða í minni úrræði viðkvæmra hópa enda var gefin undanþága fyrir starfsemi þeirra.Vel var tekið á móti verkfallsvörðum hvert sem þeir komu, ljóst er að mikil samstaða ríkir meðal starfsfólks vinnustaða Reykjavíkurborgar og þjónustuþega.Efling býður áhugasömum félagsmönnum í verkfalli að taka þátt í verkfallsvörslu í næstu viku með því að senda tölvupóst á felagssvid@efling.isFélagið þakkar kærlega fyrir góðar móttökur og fyrir þann samhug sem starfsfólk frá öðrum stéttarfélögum, foreldrar barna og notendur þjónustu sem hefur skerst hafa sýnt.