Kópavogsbær og fleiri sveitarfélög hafna kjaraleiðréttingu sem Efling hefur samið um við Reykjavíkurborg og ríkið

16. 03, 2020

Sveitarfélögin sem eiga ósamið við Eflingu, þar á meðal Kópavogsbær, hafa hafnað að veita starfsfólki sínu sambærilega kjaraleiðréttingu og þá sem Efling hefur samið um við Reykjavíkurborg og ríkið.Í samningi Eflingar við Reykjavíkurborg var samið um grunnlaunahækkanir umfram Lífskjarasamninginn um að meðaltali 7.800 krónur og sérstaka leiðréttingu lægstu launa í formi aukagreiðslu. Í samningi Eflingar við ríkið er svigrúm til sérstakrar leiðréttingar á kjörum félagsmanna, sem flestir vinna á Landspítalanum.Á samningafundi í dag fyrir hádegi hafnaði samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga alfarið að útfæra sams konar leiðréttingu fyrir félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarsbæ og öðrum sveitarfélögum í nágrenni Reykjavíkur.Eflingarfélagar hjá þessum sveitarfélögum vinna láglaunastörf og sögulega vanmetin kvennastörf, flest við umönnun, þrif, þvotta og í eldhúsum og mötuneytum. Mikið mun mæða á þessum störfum á næstu vikum og mánuðum vegna Covid-19 faraldursins.Á fundinum lýsti Efling vilja til að útfæra ríkis- og borgarleiðréttinguna með tilliti til launatöflu sveitarfélaganna og til að hlýða á gagntilboð. Var því hafnað.Efling kom á framfæri hvatningu til sveitarfélaganna að endurskoða afstöðu sína og kallaði eftir að fundað yrði aftur í deilunni strax eftir hádegi. Tími fyrir annan fund hefur ekki verið ákveðinn.Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi, þar sem langflestir Eflingarfélagar undir sveitarfélagasamningum starfa, hefur neitað að ræða við fulltrúa Eflingar þrátt fyrir óskir þar um.Verkfallsaðgerðir Eflingar hafa leitt til lokunar á grunnskólum í Kópavogi auk lokana og skertrar þjónustu á fleiri stofnunum sveitarfélaga.Óvíst er hvenær fundað verður næst í deilunni. Fimm dagar liðu milli síðustu tveggja funda að kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga.