Vegna orlofshúsa Eflingar og Covid-19 faraldursins

26. 03, 2020

Vegna umfjöllunar á vefnum Skessuhorn.is í gær 25. mars 2020 um orlofshúsabyggðir, m.a. í Svignaskarði þar sem Efling  og 15 önnur stéttarfélög reka orlofshús, vill Efling koma eftirfarandi á framfæri:

  • Landlæknisembættið hefur ekki mælt með lokun orlofshúsabyggða eða sérstökum ráðstöfunum í orlofshúsum umfram það sem þegar er að finna í útgefnum leiðbeiningum embættisins til framlínustarfsmanna í atvinnulífinu. Efling hefur fengið þessar upplýsingar staðfestar af embættinu.
  • Orlofssvið Eflingar hefur á síðustu vikum átt samráð við umsjónarmenn í orlofshúsabyggðum. Komist hefur verið að samkomulagi um viðeigandi ráðstafanir til að minnka líkur á smitum vegna umgangs og samneytis við gesti. Mælst hefur verið til þess að enginn samgangur sé milli umsjónarmanna og gesta, sér í lagi við afhendingu lykla, og hafa leiðbeiningar verið gefnar út þessa efnis á þremur tungumálum. Árétting og ítarleiðbeiningar um þrif á þremur tungumálum hafa jafnframt verið settar upp í orlofshúsum.
  • Þau orlofshús sem Efling er með í útleigu bjóða ekki upp á að gestir geti verið þar í tveggja vikna samfelldri heimasóttkví, enda ekki hægt að panta húsin í svo langan tíma. Því á það ekki að vera mögulegt fyrir félagsmenn Eflingar að vera í sóttkví í orlofshúsum stéttarfélagsins.