Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun

20. 04, 2020

Atkvæðagreiðsla um tillögu samninganefndar Eflingar- stéttarfélags um verkfallsboðun gagnvart Hveragerðisbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesbæ og Sveitarfélaginu Ölfusi

Rafræn atkvæðagreiðsla hefst kl. 13.00  miðvikudaginn 22. apríl 2020.Atkvæðagreiðslunni  lýkur  kl. 16.00  mánudaginn 27. apríl  2020.Kjósa hérÞann 22. apríl nk. kl. 13.00 hefst rafræn atkvæðagreiðsla um tillögu samninganefndar Eflingar-stéttarfélags um boðun verkfalls félagsmanna í Eflingu-stéttarfélagi sem starfa hjá Hveragerðisbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesbæ og Sveitarfélaginu Ölfusi.Verkfallið tekur til félagsmanna Eflingar sem vinna hjá framangreindum sveitarfélögum skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Eflingar  sem rann út þann 31. mars 2019. Verkfallið tekur til allra þeirra starfa sem unnin eru samkvæmt þeim samningi.Vinnustöðvunin er  ótímabundin og hefst þriðjudaginn  5. maí 2020 kl. 12:00 á hádegi.Atkvæðisrétt eiga félagsmenn Eflingar sem vinna hjá ofangreindum sveitarfélögum.Fái einnhver  sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki aðgang að atkvæðagreiðslunni, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu Eflingar fram til loka kjörfundar, og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram nauðsynleg gögn.Reykjavík, 20. apríl 2020.KjörstjórnEflingar-stéttarfélags

———————————————————————

Samninganefnd Eflingar – stéttarfélags gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélagaFundur 20. apríl 2020

Tillaga um vinnustöðvun

Fundur samninganefndar Eflingar – stéttarfélags gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélaga haldinn 20. apríl 2020 kl. 13:00 með fjarfundabúnaði samþykkir að láta fara fram atkvæðagreiðslur um boðun vinnustöðvana skv. 15. grein laga 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.Samningaviðræður um framlagðar kröfur Eflingar – stéttarfélags vegna endurnýjunar kjarasamnings við Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd félagsmanna Eflingar hafa reynst árangurslausar þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara. Yfirlýsing um að félagið telji viðræðurnar árangurslausar var lögð fram munnlega á fundi hjá Ríkissáttasemjara þann 21. febrúar 2020.Um er að ræða tvær tillögur um boðun vinnustöðvana:

  1. Vinnustöðvun félagsmanna sem starfa í grunnskólum.

Vinnustöðvunin tekur til félagsmanna Eflingar sem vinna í grunnskólum hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfus skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Eflingar – stéttarfélags sem rann út þann 31. mars 2019. Vinnustöðvunin tekur til allra þeirra starfa sem unnin eru samkvæmt ofangreindum samningi í grunnskólum.

  1. Vinnustöðvun félagsmanna annarra en þeirra sem starfa í grunnskólum.

Vinnustöðvunin tekur til félagsmanna Eflingar sem vinna á vinnustöðum öðrum en grunnskólum hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfus skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Eflingar – stéttarfélags sem rann út þann 31. mars 2019. Vinnustöðvunin tekur til allra þeirra starfa sem unnin eru samkvæmt ofangreindum samningi á vinnustöðum öðrum en grunnskólum.Vinnustöðvunin er með þeim hætti að félagsmenn leggja niður vinnu ótímabundið frá klukkan 12:00 á hádegi þriðjudaginn 5. maí 2020.