Reglur um skil á læknisvottorði

Athygli er vakin á breyttum reglum hjá Sjúkrasjóði Eflingar um skil á læknisvottorðum. Með þessu er verið að betrumbæta þær reglur sem þegar hafa verið í gildi í mörg ár.

  • Umsókn um sjúkradagpeninga skjal fylgja ljósrit af sjúkradagpeningavottorði frá lækni, upprunnið í tölvukerfum heilsugæslunnar og spítalanna.
  • Fyrsta vottorð þarf að vera íslenskt sjúkradagpeningavottorð. Framhaldsvottorð (vottorð vegna endurnýjunar/framlengingar) mega vera af erlendum toga en þurfa að vera ítarleg og innihalda sambærilegar upplýsingar og sjúkradagpeningavottorð. Ef þau eru á erlendu tungumáli þarf að fylgja þýðing yfir á íslensku eða ensku gerð af löggiltum skjalaþýðanda.
  • Heimilt er að skila erlendu fyrsta vottorði ef félagsmaður veikist skyndilega í fríi erlendis. Félagsmaður getur þurft að færa sönnur fyrir því að um fyrirfram ákveðið frí erlendis hafi verið að ræða.
  • Trúnaðarlæknir sjúkrasjóðs þarf að samþykkja öll erlend læknisvottorð sem móttekin eru undir skilyrðum í lið b) og c). Úrskurður trúnaðarlæknis er endanlegur. Samkvæmt reglugerð sjúkrasjóðs er heimilt að vísa ágreiningi vegna úthlutunar til úrskurðar félagsstjórnar.

Þessar reglur taka gildi frá og með 1. maí 2020.