Starfsafl styrkir allt að 90% til 30. september

12. 06, 2020

Félagsmenn á almennum vinnumarkaði (þ.e. starfa hjá einkafyrirtækjum) geta nú fengið allt að 90% endurgreiðslu fyrir starfstengd nám úr fræðslusjóðnum Starfsafli.Í apríl síðastliðnum samþykkti stjórn Starfsafls  allt að   90% endurgreiðslu af kostnaði vegna starfstengdra námskeiða / náms í stað 75% endurgreiðslu, til að mæta núverandi ástandi í samfélaginu.Til að mynda er hægt að fá 90% endurgreiðslu á námskeiðsgjöldum Aftur til vinnu sem er námskeið fyrir fólk í atvinnuleit.Tekur þetta til náms sem keypt er og reikninga sem gefnir eru út á tímabilinu 15. mars til  30. september 2020 og uppfylla skilyrði sjóðsins.Hægt er að fylla út umsókn hérHægt er að senda gögn ásamt umsókn á fraedslusjodur@efling.is