Kjarasamningur Eflingar og SFV samþykktur

Kjarasamningur Eflingar við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV, var samþykktur í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Þriggja sólarhringa rafrænni atkvæðagreiðslu lauk í dag. Af 1.960 félagsmönnum sem voru á kjörskrá greiddu 342 atkvæði, eða 17,45%.

  • Já sögðu 290 eða 84,8%
  • Nei sögðu 40 eða 11,7%
  • 12 tóku ekki afstöðu, eða 3,5%

Samningurinn var kynntur á vefnum og á fundi með félagsmönnum, en hann er áþekkur þeim samningi sem undirritaður var við ríkið 7. mars síðastliðinn.