Opnað verður fyrir haust- og vetrarleigu þann 18. ágúst kl. 8:15.

13. 08, 2020

Nú verður opnað fyrir bókanir í vetrarleigu í tveimur skrefum: Þann 18. ágúst kl. 8:15 opnast fyrir bókanir frá 28. ágúst fram að jólum. Þann 2. nóvember opnast fyrir bókanir eftir áramót, frá 5. janúar – 28. maí 2021. Yfir vetrartímabilið er hægt að bóka bæði helgar- og vikuleigu, nema yfir hátíðar (jól, áramót og páska), þá er aðeins vikuleiga í boði.Hægt er að bóka hús inn á bókunarvefnum, á skrifstofu Eflingar í síma 510-7500 eða senda fyrirspurnir á orlof@efling.isSjá nánari upplýsingar hér.