Skattkerfið á Íslandi

21. 09, 2020

Athygli pólskumælandi Eflingarfélaga er vakin á því að ákveðið hefur verið að streyma aðeins frá námskeiði  um skattkerfið á Íslandi á facebooksíðu Eflingar fimmtudaginn 24. september kl. 19-21. Ekki verður því hægt að fylgjast með námskeiðinu í húsakynnum Eflingar við Guðrúnartún eins og áður hafði verið auglýst. Þess ákvörðun er tekin með hliðsjón af sóttvörnum vegna Covid-19. Eins og áður gefst áhorfendum tækifæri til að spyrja spurninga í gegnum streymið með því að kommenta fyrir neðan streymi.Á námskeiðinu verður farið hefur lög og reglur um skattkerfið á Íslandi. Hverjar skyldur skattgreiðanda eru og hver munurinn er á launagreiðslu og verktakagreiðslu. Þá verður fjallað um gerð skattframtals og hvaða kostnað er hægt að nýta til frádráttar frá skatti.  Námskeiðið er haldið í samstarfi við embætti ríkisskattstjóra. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Helgi Guðnason og þýðandi Wieslawa Vera Lupinska.