Efling skorar á Kópavogsbæ að standa við skuldbindingar um styttingu vinnuvikunnar

28. 01, 2021

Efling-stéttarfélag hefur sent bréf til Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra í Kópavogi og Þorsteins Einarssonar, starfsmannastjóra þar sem skorað er á Kópavogsbæ að standa við skuldbindingar sínar í gildandi kjarasamningi um styttingu vinnuvikunnar.Eitt veigamesta ákvæði samningsins felur í sér skuldbindingu Kópavogsbæjar um að eiga samráð við starfsfólk um styttingu vinnuvikunnar um allt að 4 tíma á viku miðað við 40 stunda vinnuviku.Í könnun meðal Eflingarfélaga hjá Kópavogsbæ segir ríflega helmingur aðspurðra að stytting vinnuvikunnar hafi ekki verið innleidd á þeirra vinnustað. Langflestir þeirra sem hafa fengið styttingu hafa einunigs fengið lágmarksstyttingu og aðeins örfáir starfsmenn hafa fengið 2-4 klukkustundir á viku.Því miður hafa vinnubrögð Kópavogsbæjar við samráð um styttinguna hjá félagsfólki Eflingar verið með öllu óboðleg. Þrýst hefur verið að Eflingarfélaga í grunnskólum að samþykkja að stytting vinnuvikunnar felist í því einu að þeir fái áfram greitt fyrir vinnu í skólafríum í tengslum við vetrarfrí og stórhátíðir. Útfærslan leiðir ekki til neinnar styttingar frá því sem nú þegar er.Sé litið til tilkynningar um styttingu opnunartíma bæjarskrifstofa Kópavogs, þar sem flestir starfsmenn tilheyra stéttarfélögum faglærðra, má ætla að Kópavogsbær mismuni starfsfólki eftir stéttarfélagsaðild og er það óásættanlegt að þar beri verka- og láglaunafólk skarðastan hlut frá borði.„Ég vissi varla hvort ég átti að hlæja eða gráta þegar ég sá niðurstöður Kópavogsbæjar vegna styttingar vinnuvikunnar. Ómissandi starfsfólk í heimaþjónustu sem hefur starfað undir miklu álagi í Covid-faraldrinum fær algjöra lágmarksstyttingu. Og fólkið okkar í grunnskólunum sem er líka algjörlega ómissandi starfsfólk er í þeirri óboðlegu stöðu að fá í raun enga styttingu eftir að hafa orðið fyrir þrýstingi frá fulltrúum Kópavogsbæjar. Hverjir fá svo raunverulega styttingu vinnuvikunnar? Jú, starfsfólk bæjarskrifstofunnar en þar hefur verið ákveðið að einfaldlega loka alltaf kl. 13 á föstudögum. Það er augljóst að gæðunum er verulega misskipt í Kópavogsbæ” segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.Bréf Eflingar til Kópavogsbæjar