Nýr skóli Eflingar hlýtur nafn

20. 04, 2021

Efling hefur stofnað nýjan skóla fyrir félagsfólk. Efnt var til nafnasamkeppni meðal félagsmanna um heiti á skólanum og bárust félaginu hvorki meira né minna 135 tillögur.Vinningstillagan kom frá Dovile Paulauskaite og verður nafn skólans Vitinn – skóli Eflingar. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar afhenti á Dovile á dögunum verðlaunin, 50.000 kr. í húskynnum Eflingar að Guðrúnartúni 1.Dómnefnd skipuðu Sólveig Anna Jónsdóttir formaður, Fríða Rós Valdimarsdóttir, teymisstjóri fræðslumála hjá Eflingu og Kontór auglýsingastofa.Í umsögn dómnefndar segir: „Vitinn er táknrænn fyrir stöðugleika í ólgusjó, hann vísar veginn og er ljós í myrkrinu. Þá vísar heitið einnig til vits sem einmitt fæst með aukinni fræðslu.‟Um er að ræða uppstokkun á núverandi fræðslufyrirkomulagi stéttarfélagsins auk nýrrar námsbrautar. Markmiðið er að færa fræðslu til félaga í nútímalegra horf, gera hana fjölbreyttari, markvissari og áhugaverðari en áður.Með skólanum er mynduð eins konar regnhlíf yfir núverandi kennsluframboð Eflingar, þ.e. trúnaðarmannafræðslu, fræðslumorgnana Drop-Inn, virkninámskeið, starfslokanámskeið og önnur stök námskeið. Jafnframt verður boðið upp á svokallaða almenna braut þar sem Eflingarfélögum er veittur stuðningur, tæki og tól til að hafa aukin áhrif, beita sér í þágu verkalýðsbaráttunnar og samfélagsmála almennt. Kennsla hefst í haust.