Trúnaðarmenn Eflingar fjölmenntu á samstöðufund á Reykjavíkurflugvelli

15. 10, 2021

Trúnaðarmenn og félagsfólk í Eflingu úr öllum starfsgreinum komu saman við Reykjavíkurflugvöll í dag milli fimm og sex til að sýna samstöðu með Ólöfu Helgu Adolfsdóttur, trúnaðarmanni í hlaðdeild á Reykjavíkurflugvelli. Icelandair rak Ólöfu Helgu úr vinnu meðan hún gætti hagsmuna vinnufélaga sinna sem trúnaðarmaður og öryggistrúnaðarmaður.

Félagsmenn voru íklæddir merktum vestum, settu upp borða og afhentu flugfarþegum dreifimiða með upplýsingum um mál Ólafar. Ólöf sjálf hélt ávarp og lesnar voru upp samstöðuyfirlýsingar frá öðrum stéttarfélögum.

Ólöf þakkaði í ávarpaði sínu félagsmönnum í Eflingu fyrir þann mikla stuðning og samstöðu sem þeir hafa sýnt henni. Hún sagði nauðsynlegt að Icelandair svaraði fyrir brot sín, sem væru brot gegn réttindum allra trúnaðarmanna. Ólöf sagðist ennþá reiðubúin að snúa aftur til vinnu verði uppsögn hennar dregin baka.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar stýrði fundi og gagnrýndi hún harðlega Samtök atvinnulífsins fyrir þátttöku þeirra í uppsögn Ólafar.

Fundurinn fór vel fram og var lokið um klukkan sex. Eftir það héldu fundarmenn í Félagsheimili Eflingar þar sem þeir luku fundi með veitingum og samveru.