Fræðslu- og tengsladagur ASÍ-UNG

ASÍ-UNG stendur fyrir fræðslu- og tengsladegi 18. – 19. nóvember á Hótel Bifröst.

Fundurinn er ætlaður öllu ungu fólki á aldrinum 16-35 ára sem hefur áhuga á starfi stéttarfélaga.

Hótel Bifröst býður gistingu með morgunverði á 14.500 kr. Efling greiðir fyrir þátttakendur á vegum félagsins. Að auki greiðir greiðir félagið kílómetragjald fyrir þá sem fara á bílum og það launatap sem einstaklingur verður fyrir vegna þátttöku sinnar.

ASÍ-UNG býður þátttakendum í þriggja rétta máltíð á fimmtudagskvöldinu og hádegisverð á föstudeginum.

Áhugasamir geta skráð sig á felagssvid@efling.is. Nafn, kennitala og símanúmer þarf að fylgja.

Athugið að um takmarkaðan fjölda þátttakenda er að ræða og gildir því reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

Síðasti dagur til að skrá sig er mánudaginn 15. nóvember.

Dagskrá

Fimmtudagur

13.00-13.30 ASÍ-UNG
Formaður/stjórn ASÍ-UNG kynnir starf ASÍ-UNG.

13.30-14.30 Alþýðusamband Íslands – hlutverk, starf og staða
Farið er yfir sögu Alþýðusambandsins, hlutverk þess og skipulag starfsins, innan lands og utan. Farið verður yfir uppbyggingu sambandsins og verkalýðshreyfingarinnar.

14.30-15.00 Kaffipása og spjall

15.00-17.30 Ungt fólk og verkalýðshreyfingin
Hugvekja: Hvert á hlutverk ungliða að vera? 7-10 mínútna erindi.
Hópavinna: Fjallað um hlutverk og aðkomu ungliðahreyfinga að verkalýðsbaráttu og hreyfingunni.

17.30-17.45 Samantekt

19.00 Kvöldverður á Hótel Bifröst í boði ASÍ-UNG

Föstudagur

8.30 – 9.45 RSÍ-UNG – Ungliðastarf innan stéttarfélaga og í grasrótinni
Formaður RSÍ-UNG flytur erindi og stýrir svo umræðum og hópavinnu.

9.45 10.15 Kaffipása og spjall

10.15-12.00 Hópavinna: Breytt hlutverk ASÍ-UNG Hvernig er hægt að efla starf ASÍ-UNG. Hver á megin tilgangur ASÍ-UNG að vera? Með hvaða hætti skilar starfið mestum árangri fyrir ungt fólk innan hreyfingarinnar?

12.00-13.00 Hádegismatur í boði ASÍ-UNG

13.00-14.30 Samantekt og niðurstöður hópavinnu