Móttakan opnar á ný

28. 01, 2022

Móttaka Eflingar opnar á nýjan leik mánudaginn 31. janúar eftir að samkomutakmarkanir hafa verið rýmkaðar. Við þessa breytingu verður farið eftir tilmælum heilbrigðisyfirvalda og er þess óskað að félagsmenn beri grímu og virði eins metra fjarlægðarmörk í húsnæðinu.

Auðvelt er að nálgast þjónustu félagsins í síma 510-7500 og í gegnum netfangið efling@efling.is. Sjá nánar um rafræna þjónustu Eflingar. Félagsmönnum er þakkað fyrir skilning og  þolinmæði gagnvart lokun móttökunnar.