Verð íbúða hækkar og hækkar en vaxtabætur lækka og lækka

2. tbl. Kjarafrétta Eflingar er komið út. Þar er fjallað um hrun vaxtabótakerfisins.

Sífellt erfiðara er að eignast íbúðarhúsnæði á Íslandi. Verð íbúða hækkar viðstöðulaust, langt umfram laun, og hefur nú náð fordæmalausum hæðum. Á sama tíma hefur megin stuðningskerfi ríkisins við íbúðakaup launafólks, vaxtabætur, nær algerlega fjarað út.

Í staðinn hafa stjórnvöld sett hluta af því sem sparaðist í stofnfjárstyrki til bygginga leiguíbúða og í hlutdeildarlán. Það gagnast hins vegar einungis mjög litlum hluta þeirra sem áður áttu kost á umtalsverðum vaxtabótum. Á sama tíma hefur ekki verið byggt nægilega mikið. Staðan hefur því stórlega versnað.

Í dag er kaupmáttarleiðréttur húsnæðiskostnaður þeirra sem búa í eigin húsnæði hærri á Íslandi en í nokkru öðru Evrópulandi. Það endurspeglar óvenju mikinn kostnað vegna fjármögnunar íbúðakaupa. Þörfin fyrir öflugt vaxtabótakerfi er því hvergi meiri en hér á landi.

Lesa blað.