Kjarafréttir: Öryrkjar í fjötrum fátæktar og skerðinga

16. 05, 2022

Komið er út nýtt tölublað af Kjarafréttum Eflingar, sem fjallar um afkomu öryrkja. Of lágur lífeyrir almannatrygginga, of miklar skerðingar og of háir skattar á lágar tekjur lífeyrisþega festa alltof marga örorkulífeyrisþega í fjötrum fátæktar. Öryrki sem aflar sér allt að 200 þúsund króna aukatekjur með atvinnuþátttöku eða með sparnaði í lífeyrissjóðum nær varla endum saman vegna skerðinganna og skattanna.

PDF-útgáfa 7. tölublaðs Kjarafrétta 2022 hér.