Auglýst eftir fulltrúum á 45. þing ASÍ 

Efling – stéttarfélag kallar eftir tilnefningum þingfulltrúa á 45. þing Alþýðusambands Íslands sem haldið verður á Hótel Nordica dagana 10.-12. október. Þingfulltrúar eru samtals 290 talsins og skiptast þeir milli landssambanda og aðildarfélaga í hlutfalli við fjölda félagsmanna. Efling á 54 fulltrúa á þinginu. 

Óskað er eftir að tilnefningar séu sendar í gegnum rafrænt eyðublaðið hér fyrir neðan eigi síðar en í lok dags þann 14. september. Allir fullgildir félagsmenn í Eflingu geta tilnefnt sjálfan sig. 

Listi yfir þingfulltrúa Eflingar verður borinn upp til samþykkis á fundi trúnaðarráðs þann 15. september. 

Greiddir eru dagpeningar í þrjá daga fyrir setu á þinginu. Upphæðin er 13.600 kr. á dag, sbr. ákvörðun Ferðakostnaðarnefndar Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Fulltrúar sitja þingveislu að kvöldi 11. október þeim að kostnaðarlausu. Fulltrúar sem verða fyrir launatapi vegna setu á þinginu fá það endurgreitt frá Eflingu sendi þeir skrifstofu félagsins gögn til staðfestingar. 

Þing Alþýðusambandsins fer með æðsta vald í málefnum sambandsins. Þar fer fram kjör forseta og miðstjórnar auk þess sem lagabreytingar og ályktanir um stefnu sambandsins eru teknar fyrir. Dagskrá þingsins liggur fyrir og má sjá hana auk þingskjala á þingvef.

Uppfært 19. september 2022: Lokað hefur verið fyrir tilnefningar skv. því sem upplýst var á fundi trúnaðarráðs 15. september.