Ályktun trúnaðarráðs vegna frumvarps Sjálfstæðisflokksins um félagafrelsi

21. 10, 2022

Svohljóðandi ályktun var borin upp og samþykkt á fundi trúnaðarráðs Eflingar 20. október 2022:

Trúnaðarráð Eflingar – stéttarfélags fagnar áhuga þingmanna Sjálfstæðisflokksins á mannréttindum og lýðræði. Þennan áhuga má sjá af nýlegu frumvarpi þeirra um félagafrelsi á vinnumarkaði.

Trúnaðarráð hvetur þingmenn Sjálfstæðisflokksins til að kynna sér starfsemi íslenska lífeyrissjóðakerfisins. Það kerfi byggir á skylduaðild, þar sem lög krefjast þess að minnst 12% af öllum launum verkafólks séu greidd í lífeyrissjóðsiðgjald. Getur það varðað sektum eða fangelsi að greiða ekki iðgjaldið.

Þegar iðgjaldið hefur verið greitt fellur það undir stjórn einstakra lífeyrissjóða, þar sem lýðræðislegt aðhald sjóðfélaga er ekkert. Þeir fá tækifæri til að kjósa, með milligöngu fulltrúaráðs, helming stjórnarmanna en hinn helmingurinn er valinn með geðþótta íslenskra fyrirtækjaeigenda. Með þessu fyrirkomulagi er tryggt að sjóðfélagar séu áhrifalausir um ráðstöfun þeirra fjármuna sem þeir eru þó skikkaðir með lögum til að greiða. Um er að ræða augljóst brot gegn félagafrelsi, mannréttindum og grunnreglum lýðræðisins.

Trúnaðarráð Eflingar – stéttarfélags treystir því að þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni á næstunni leggja fram frumvarp þar sem skylduaðild að lífeyrissjóðum verði annað hvort afnumin eða skilyrt af eðlilegu lýðræði við meðhöndlun þeirra fjármuna sem sjóðfélagar eru skikkaðir með lögum til að greiða til þeirra.