Jólaball Eflingar – skráning er hafin

24. 11, 2022

Jólaball Eflingar verður haldið laugardaginn 10. desember í Gullhömrum Grafarholti kl. 13.00. Húsið opnar kl. 12.30. Jólaballið er félagsmönnum að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig á Mínum Síðum. Skráning hefst í dag og stendur til hádegis 5. desember.

Jólasveinar koma í heimsókn. Hljómsveit hússins sér um dans og söng. Boðið verður upp á veitingar. Nammipokar fyrir börnin. 450 miðar verða í boði og hámarksfjöldi miða á mann eru 5. Nafnalisti verður við innganginn.

Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu eða lenda í vandræðum með rafræna skráningu geta haft samband við skrifstofu Eflingar í síma: 510 7500. Þeir sem hafa skráð sig fyrir miðum en forfallast eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna það á efling@efling.is.