Jólamarkaður Eflingar – ennþá nokkur pláss laus

21. 11, 2022

Jólamarkaður Eflingar verður haldinn helgina 3. – 4. desember. Þar gefst félagsfólki Eflingar kostur á að bóka bás sér að kostnaðarlausu og hafa til sölu handverk sitt eða aðra framleiðslu, t.d. jólakort, kerti, prjónadót eða aðra handavinnu.

Hafir þú áhuga á að taka þátt eða vilt fá nánari upplýsingar geturðu haft samband við Magdalenu Kwiatkowska, magda@efling.is eða í síma: 510-7500.

Við hvetjum allt skapandi og framkvæmdaglatt félagsfólk til að hafa samband við félagið.

Jólamarkaðurinn verður helgina 3. og 4. desember, kl. 13.00 – 16.00 í Félagsheimili Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð.

Við ætlum að skapa notalega og skemmtilega jólastemningu þar sem boðið verður upp á kakó og piparkökur, tónlist og afþreyingu fyrir börnin.