Atkvæðagreiðsla um boðun vinnustöðvunar – Reykjavík Edition og Berjaya Hotels

31. 01, 2023

Kjörstjórn Eflingar – stéttarfélags auglýsir hér með almenna leynilega rafræna atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar á starfsstöðvum fyrirtækjanna Berjaya Hotels Iceland hf. og Cambridge Plaza Hotel Comp ehf. (The Reykjavík EDITION).

Atkvæði greiða þeir félagsmenn sem boðunin tekur til.

Um er að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem hefst klukkan 12 á hádegi 15. febrúar 2023. Vinnustöðvunin tekur til allra starfa undir kjarasamningi Eflingar við SA um vinnu í veitinga- og gistihúsum, á eftirtöldum starfsstöðvum:

BERJAYA HOTELS ICELAND hf.
         Alda Hotel Reykjavik…………………………………… Laugavegi 66-68, 101 Reykjavík
         Berjaya Reykjavik Marina Hotel………………….. Mýrargötu 2-8, 101 Reykjavík
         Reykjavík Marina Residence……………………….. Mýrargötu 14-16, 101 Reykjavík
         Berjaya Reykjavik Natura Hotel………………….. Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík
         Canopy by Hilton Reykjavik City Centre……. Smiðjustíg 4, 101 Reykjavík
         Hilton Reykjavik Nordica……………………………. Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
         Reykjavik Konsúlat Hotel……………………………. Hafnarstræti 17-19, 101 Reykjavík

Cambridge Plaza Hotel Comp ehf.
         The Reykjavik EDITION…………………………….. Bryggjugötu 8, 101 Reykjavík

Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 12 á hádegi föstudaginn 3. febrúar 2023.

Atkvæðagreiðslu skal ljúka klukkan 18:00 þriðjudaginn 7. febrúar 2023.

Boðun var samþykkt á fundi samninganefndar Eflingar þann 30. janúar 2023. Texti hennar í heild sinni er hér.

Tengill til að fá aðgang að rafrænni atkvæðagreiðslu er hér fyrir ofan (virkjast kl. 12 á hádegi 3.2.2023). Allir félagsmenn á kjörskrá sem eru með skráð netfang hjá félaginu fá tengilinn jafnframt sendan í tölvupósti. Til að greiða atkvæði þarf rafræn skilríki.

Félagsmenn sem eru ekki á kjörskrá en telja sig hafa atkvæðisrétt skulu senda erindi til kjörstjórnar og óska þess að vera bætt á kjörskrá. Erindi skal fylgja launaseðill eða ráðningarsamningur. Farið er með erindið og fylgigögn í trúnaði og skal það sent á netfangið felagsmal@efling.is.

Félagsmenn sem ekki geta nýtt sér rafræna atkvæðagreiðslu geta kosið utan kjörfundar með pappírsatkvæði á skrifstofu félagsins, á opnunartíma hennar, og skulu hafa löggild skilríki meðferðis, svo sem ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini útgefið af Þjóðskrá Íslands.

31. janúar 2023