Efling hafnar þvingunaraðgerðum ríkissáttasemjara

27. 01, 2023

Efling – stéttarfélag móttók í dag fyrirkall frá Héraðsdómi Reykjavíkur sem er til komið vegna aðfararbeiðni sem lögð hefur verið fram af Aðalsteini Leifssyni, ríkissáttasemjara. Í aðfararbeiðni þessari er krafist afhendingar á kjörskrár til afnota við atkvæðagreiðslu um svonefnda miðlunartillögu sem Aðalsteinn hefur auglýst.

Efling hefur lýst því yfir að miðlunartillögu ríkissáttasemjara skorti lögmæti og sé markleysa. Efling telur að ríkissáttasemjari hafi misnotað valdheimildir embættisins og kastað rýrð á það hlutleysi sem er grundvöllur trúverðugleika embættisins. Af þeim sökum hefur stjórn félagsins lýst vantrausti á embættið.

Öll helstu heildarsamtök launafólks á Íslandi hafa einnig gagnrýnt miðlunartillöguna og vinnubrögð embættisins.

Að mati Eflingar getur ekki verið um miðlunartillögu að ræða þegar óskir annars aðilans í kjaradeilu eru teknar upp óbreyttar og sjónarmið hins aðilans með öllu hunsuð.

Fautaskapur embættisins við að ganga erindi atvinnurekenda og þröngva vilja þeirra upp á verka- og láglaunafólk, á kostnað sjálfstæðs lögvarins samningsréttar þeirra, er fáheyrður í sögu samskipta aðila vinnumarkaðins á Íslandi.

Samkvæmt 27. grein laga um stéttarfélög og vinnudeilur 80/1938 ber ríkissáttasemjara að ráðgast við samninganefndir aðila áður en hann ber upp miðlunartillögu. Í 28. gr. er kveðið á um rétt deiluaðila til að koma á framfæri athugasemdum. Á fundi með formanni og starfsmönnum samninganefndar Eflingar síðastliðinn fimmtudagsmorgun afhenti Aðalsteinn Leifsson þeim tilbúna miðlunartillögu, og hafði þá þegar boðað til blaðamannafundar sem fara átti fram kl. 11. Aðalsteinn ætlaði sér aldrei að bjóða til samráðs við Eflingu eða gefa félaginu tækifæri til athugasemda, sem er lögbrot auk þess að afhjúpa að um er að ræða hlutdræga og einhliða þvingunaraðgerð.

Með því að leggja fram umrædda aðfararbeiðni í stað þess að sjá sóma sinn í að víkja af braut augljósra mistaka hefur embætti ríkissáttasemjara kosið að sökkva sér dýpra ofan í fen eigin drambsemi. Efling mun standa gegn lögbrotum og átroðslu embættis ríkissáttasemjara af fullum þunga, og verja samningsrétt verkafólks.