Stjórn Eflingar lýsir vantrausti á ríkissáttasemjara

26. 01, 2023

Stjórn Eflingar samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í dag 26. janúar varðandi svokallaða miðlunartillögu ríkissáttasemjara:

Stjórn Eflingar fordæmir vinnubrögð ríkissáttasemjara í yfirstandandi kjaradeilu félagsins við Samtök atvinnulífsins. Ríkissáttasemjari hefur ekki sýnt minnsta áhuga á þvi að kynna sér, greina eða taka mark á vönduðum röksemdum samninganefndar Eflingar sem byggja á staðreyndum og gögnum um félagsmannahópinn og aðstæður hans.

Algjör vanræksla ríkissáttasemjara á því að hafa röksemdir samninganefndar Eflingar til nokkurrar hliðsjónar er nú öllum almenningi ljós í miðlunartillögu sem hann lagði fram í morgun. Með miðlunartillögunni á að þröngva kjarasamningi Starfsgreinasambandsins og SA upp á félagsfólk Eflingar, þrátt fyrir að samninganefnd Eflingar hafi ítrekað komið því með málefnalegum hætti á framfæri að sá samningur mætir ekki þörfum félagsfólks og tekur ekki tillit til aðstæðna þeirra. Sá samningur sem ríkissáttasemjari ætlar sér að neyða upp á félagsfólk Eflingar myndi hafa þær afleiðingar að stórir hópar félagsfólk fengju að meðtali allt að 20 þúsund lægri hækkanir en félagsmannahópur SGS félaganna.

Ríkissáttasemjari hefur gert grófa tilraun til að svipta Eflingu, stærsta félag verka- og láglaunafólks á Íslandi, sjáfstæðum samningsrétti sínum. Sú miðlunartillaga sem hann hefur lagt fram er að mati stjórnar Eflingar ólögmæt. Engin tilraun var gerð af hálfu ríkissáttasemjara til að ræða tillöguna við formann eða samninganefnd félagsins. Formanni Eflingar var einfaldlega afhent tillagan um það bil klukkutíma áður en ríkissáttasemjari hélt sérstakan blaðamannafund til að upplýsa um hana.

Ríkissáttasemjari hefur með vinnubrögðum sínum ekki aðeins svívirt allar hefðir í samskiptum aðila vinnumarkaðarins og unnið orðspori embættisins skaða, heldur hefur beinlínis brotið ákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80 frá 1938 þar sem skýrt er kveðið á um samráð og rými til athugasemda þegar gripið er til þess neyðarúrræðis sem miðlunartillaga er.

Með hliðsjón af ofangreindu lýsir stjórn Eflingar vantrausti á ríkissáttasemjara.