Allar beiðnir um verkfallsundanþágur vegna almannaöryggis samþykktar

14. 02, 2023

Undanþágunefnd vegna verkfallsaðgerða Eflingar meðal bifreiðastjóra kom saman í kvöld á sínum fyrsta fundi.

Nefndin samþykkti ótímabundnar undanþágur til allra aðila sem sóttu um undanþágur vegna almannaöryggis. Þeirra á meðal eru allir helstu viðbragðsaðilar í neyðarþjónustu, sem og þær stofnanir sem gegna lykilhlutverki í samgöngu- og upplýsingainnviðum.

Meðal þeirra sem sóttu um, fengu undanþágur og hafa fengið svar afhent eru Ríkislögreglustjóri, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Rauði krossinn, Strætó, Ríkisútvarpið og vetrarþjónusta Vegagerðarinnar.

Samtals voru samþykktar um 70 undanþágubeiðnir. Einungis þremur var hafnað og í örfáum tilvikum var nánari rökstuðnings óskað eða aðeins orðið við beiðni að hluta.

Nefndin fundar að nýju á morgun þar sem enn er eftir að fara í gegnum margar fyrirliggjandi umsóknir, mestmegnis frá smærri aðilum.

Nefndin hefur að auki átt í samskiptum við fleiri aðila, svo sem Landspítalann, sem vinna að undirbúningi undanþágubeiðna sem skilað verður inn á næstu dögum.

Undanþágunefnd þakkar viðbragðsaðilum fyrir góð samskipti við afgreiðslu undanþágubeiðna.