Atkvæðagreiðsla um boðun vinnustöðvunar – Hótel og gistihús

13. 02, 2023

Kjörstjórn Eflingar – stéttarfélags auglýsir hér með almenna leynilega rafræna atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar sem nær til allra starfa á hótelum og gistihúsum sem unnin eru skv. kjarasamningi Sam­taka atvinnulífsins og Eflingar – stéttarfélags um vinnu starfsfólks í veitinga- og gisti­húsum og hlið­stæðri starfsemi sem gilti frá 1. apríl 2019 og rann út þann 1. nóvember 2022.

Atkvæði greiða þeir félagsmenn sem boðunin tekur til.

Um er að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem hefst klukkan 12:00 á hádegi þriðjudaginn 28. febrúar 2023 nema kjarasamningar hafi tekist eða vinnustöðvun verið frestað fyrir þann tíma.

Til viðbótar við áður samþykktar núgildandi vinnustöðvanir nær vinnustöðvun þessi til allra starfa skv. ofangreindum kjarasamningi á hótelum og gistihúsum sem eru með starfsstöðvar á félagssvæði Eflingar skv. 1. gr. laga félagsins.

Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 12:00 á hádegi fimmtudaginn 16. febrúar 2023.

Atkvæðagreiðslu skal ljúka klukkan 18:00 mánudaginn 20. febrúar 2023.

Boðun var samþykkt á fundi samninganefndar Eflingar þann 12. febrúar 2023. Texti hennar í heild sinni er hér.

Tengill til að fá aðgang að rafrænni atkvæðagreiðslu er hér fyrir ofan (virkjast kl. 12:00 á hádegi 16.02.2023). Allir félagsmenn á kjörskrá sem eru með skráð netfang hjá félaginu fá tengilinn jafnframt sendan í tölvupósti. Til að greiða atkvæði þarf rafræn skilríki.

Félagsmenn sem eru ekki á kjörskrá en telja sig hafa atkvæðisrétt skulu senda erindi til kjörstjórnar og óska þess að vera bætt á kjörskrá. Erindi skal fylgja launaseðill eða ráðningarsamningur. Farið er með erindið og fylgigögn í trúnaði og skal það sent á netfangið felagsmal@efling.is.

Félagsmenn sem ekki geta nýtt sér rafræna atkvæðagreiðslu geta kosið utan kjörfundar með pappírsatkvæði á skrifstofu félagsins, á opnunartíma hennar, og skulu hafa löggild skilríki meðferðis, svo sem ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini útgefið af Þjóðskrá Íslands.

13. febrúar 2023