Minnum á námskeiðið – Skattkerfið á Íslandi

20. 02, 2023

Boðið er upp á námskeiðið á ensku og pólsku.

Enska:  þriðjudaginn 21. febrúar 2023, kl. 19-21.
Pólska: fimmtudaginn 23. febrúar 2023, kl. 19-21.

Farið verður yfir lög og reglur um skattkerfið á Íslandi. Hverjar skyldur skattgreiðenda eru og hver munurinn er á launagreiðslu og verktakagreiðslu. Þá verður fjallað um gerð skattframtals og hvaða kostnað er hægt að nýta til frádráttar á skatti.

Kennsla fer fram í húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð og er félagsmönnum að kostnaðarlausu.