Samninganefnd samþykkir þrjár verkfallsboðanir

13. 02, 2023

Samninganefnd Eflingar samþykkti einróma á fundi sínum í gær 12. febrúar þrjár verkfallsboðanir. Boðanirnar eru eftirfarandi:

  • Verkfall á öllum gistiheimilum og hótelum á félagssvæði Eflingar. Þar undir falla hótelkeðjurnar Centerhotels og Keahotels, auk fjölda annarra hótela og gistihúsa. Áætlaður fjöldi er um sex hundrað manns. Með þessari vinnustöðvun yrðu öll störf undir kjarasamningum Eflingar á hótelum komin í verkfall.
  • Verkfall hjá öryggisvörslufyrirtækjum. Undir boðunina falla fyrirtækin Securitas og Öryggismiðstöð Íslands, auk smærri fyrirtækja. Um er að ræða um fjögur hundruð manns.
  • Verkfall hjá ræstingafyrirtækjum. Undir boðunina falla stærstu þrifafyrirtæki landsins á borð við Sólar og Daga auk minni fyrirtækja. Áætlaður fjöldi á kjörskrá er um 650 manns.

Fyrri þrjár verkfallsboðanir félagsins voru samþykktar með afgerandi meirihluta og góðri kjörsókn. Atkvæðagreiðslur hefjast klukkan 12 á hádegi á fimmtudag og lýkur klukkan 18 á mánudag eftir viku.

„Við höfum séð með skýrum hætti í verkfallsatkvæðagreiðslum síðustu vikna að ómissandi verkafólk í öllum geirum vinnumarkaðarins á Höfuðborgarsvæðinu stendur sameinað. Krafa okkar er um sanngjarnan kjarasamning þar sem tekið er tillit til aðstæðna og samsetningar félagsmannahópsins. Ég hvet til þess að gengið verði til samninga við okkur,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.