Styttur opnunartími miðvikudaginn 15. febrúar

13. 02, 2023

Opnunartími skrifstofu Eflingar að Guðrúnartúni 1 verður styttri miðvikudaginn 15. febrúar vegna verkfallsskráninga.

Opið verður til 13:00 þann dag og símtölum verður sömuleiðis ekki svarað eftir þann tíma. Hægt verður þó að senda tölvupóst á efling@efling.is og brugðist verður við þeim póstum eins fljótt og auðið er.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.