Dagskrá 1. maí

24. 04, 2023

Nú fer að styttast í baráttudag verkalýðssins, 1. maí! 

Efling – stéttarfélag hvetur félagsfólk til að fjölmenna í kröfugöngu frá Skólavörðuholti og á útifund á Ingólfstorgi. Félagið býður að venju í veglegt kaffisamsæti í Valsheimilinu. 

Staðsetningar og tími: 

  • Safnast verður saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti kl. 13:00. 
  • Kröfugangan leggur af stað kl. 13:30. 
  • Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi þar sem flutt verða ávörp og skemmtiatriði. 

Félagsfólk er velkomið í kaffi í Valsheimilinu strax að lokinni dagskrá á Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins kemur og tekur nokkur lög, boðið verður upp á kaffiveitingar, ísvagn kemur á staðinn og börn geta fengið andlitsmálningu.

Lokað verður á skrifstofu Eflingar þennan dag.

Gleðilegan baráttudag verkalýðsins!