Desemberuppbót greiðist eigi síðar en 15. desember ár hver.
Þeir sem hafa verið í fullu starfi 1. janúar – 31. desember eiga rétt á fullri uppbót eða í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Uppbótin er föst fjárhæð, orlof reiknast ekki ofan á hana.
Fullt ársstarf er m.v. 45 vikur, að orlofi frádregnu eða 1800 klst. Þeir sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða er í starfi fyrstu viku í desember eiga rétt á uppbótinni.
Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlorlofs til starfstíma við útreikning desember- og orlofsuppbótar.
Full desemberuppbót 2020, var 94.000 kr.
Full desemberuppbót 2021, er 96.000 kr.
Full desemberuppbót 2022, er 98.000 kr.