Hvetjum til rafrænna samskipta

Hægt er að sækja nánast alla þjónustu skrifstofu Eflingar í gegnum síma og tölvupóst. efling@efling.is / 5107500Hér eru ítarlegar leiðbeiningar um hvernig hægt er að sækja sér þjónustu og er starfsfólk reiðubúið að svara fyrirspurnum í síma og aðstoða félagsmenn eftir því sem þarf.SJÚKRASJÓÐURUmsóknir um greiðslur úr sjúkrasjóði má senda rafrænt á sjukrasjodur@efling.isKynntu þér styrki úr Sjúkrasjóði.Til að sækja um styrk þarf að senda:

  • Útfyllt umsóknareyðublað inn á Mínar síður
  • Skannað afrit eða ljósmynd af greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala kaupanda og seljanda og hvað verið er að greiða fyrir.
  • Í einstaka tilfellum þarf að skila inn launaseðlum eða öðrum gögnum og munu starfsmenn sjúkrasjóðs þá láta vita.

Til að sækja um sjúkradagpeninga þarf að senda:

  • Útfyllt umsóknareyðublað, sjá hér
  • Sjúkradagpeningavottorð – hægt er að biðja heilsugæslu/lækni að senda það beint til Eflingar í bréfpósti. ATH, ekki er æskilegt að senda sjúkradagpeningavottorð í tölvupósti.
  • Starfsvottorð frá atvinnurekanda, sjá hér
  • Síðasta launaseðil

Til að sækja um dánarbætur þarf að senda:

  • Útfyllt umsóknareyðublað, sjá hér
  • Yfirlit um framvindu skipta frá sýslumanni
  • Umboð frá öðrum erfingjum, ef leggja á styrkinn inn á reikning erfingja, sjá hér

FRÆÐSLUSJÓÐURUmsóknir um greiðslur úr fræðslusjóði má senda rafrænt á fraedslusjodur@efling.isKynntu þér styrki úr Fræðslusjóði. Til að sækja um einstaklingsstyrk þarf að senda:

  • Útfyllt umsóknareyðublað, sjá hér
  • Skannað afrit eða ljósmynd af frumriti reiknings sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing og nafn og  kennitala fræðsluaðila. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki.

Félagsmenn sem eru á skrá hjá Vinnumálastofnun þurfa einnig að skila inn staðfestingu um styrkupphæð frá stofnuninni með umsókn.Vegna umsóknar um styrk fyrir nám eða námskeið sem tekið er erlendis þarf að leggja fram frumrit reiknings á upprunalegu tungumáli og á ensku og eins þarf að vera sundurliðuð kostnaðarskipting.Til að sækja um stofnanastyrk er hægt að sækja um rafrænt með því að velja réttan sjóð á heimasíðu Eflingar; sjá hér.ORLOFSSJÓÐURTil að sækja um orlofshús í sumarúthlutun eða bóka hús í vetrarleigu bendum við á bókunarvefinn:Vegna miða- kortasölu eða annarra erinda má senda tölvupóst á orlof@efling.is með upplýsingum um nafn og kennitölu. Leyst verður úr öllum erindum eins fljótt og hægt er.Athugið að þeir sem nýta sér þjónustu á skrifstofunni við umsóknir og bókanir á orlofshúsum verða að hafa samband símleiðis eða senda tölvupóst.