Páskaúthlutun orlofshúsa Eflingar

Umsóknartímabil í páskaúthlutun hefst 1. febrúar og lýkur 18. febrúar og er hægt að fylla út umsóknir á bókunarvefnum á þessu tímabili. Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabilinu sótt er um. Úthlutað verður eftir punktakerfi sem byggist á iðgjaldasögu félagsmanna þann 22. febrúar. Greiðslufrestur er til 1. mars. Eftir úthlutunina opnast bókunarvefurinn 3. mars fyrir alla félagsmenn til að bóka laus hús sem eftir eru um páskana.Athugið að aðeins vikuleiga er í boði yfir páskana frá 31. mars. – 7. apríl 2021.Sótt er um rafrænt á bókunarvef Eflingar undir „umsókn“ , en einnig má senda inn þetta umsóknareyðublað útfyllt til skrifstofunnar eða á netfangið orlof@efling.is  og þá þarf að koma fram nafn, kennitala og hvaða hús er sótt um sem fyrsta valkost, annan valkost og allt að sex valmöguleika.Hús í boði