Námskeið í umönnun

19. 02, 2021

Viltu auka möguleika þína á nýju starfi?Eflingarfélögum í atvinnuleit stendur til boða ókeypis þátttaka í þriggja vikna námskeiði í umönnun. Kennsla fer fram í húsakynnum Mímis við Höfðabakka 9 frá 8.40-15.50 alla virka daga á tímabilinu 1. til 24. mars næstkomandi.Námskeiðið er kennt á íslensku og þurfa nemendur því að búa yfir grunnskilningi á tungumálinu til að taka þátt. Einungis er um 18 pláss að ræða.Valið verður úr hópi umsækjenda en öllum verður svarað.Skráning fer fram með tölvupósti á efling@efling.is eða í síma 510-7500. Vinsamlega gefið upp nafn, kennitölu, netfang og símanúmer í tölvupósti. Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum í gegnum sama netfang og síma.Nánari upplýsingar