Að verja botninn

25. 02, 2021

Samtök atvinnulífsins létu frá sér yfirlýsingu í gær, 24. febrúar, til stuðnings starfsmannaleigunni Menn í vinnu og matreiðslufyrirtækinu Eldum rétt. Efling hefur stutt málssókn fjögurra rúmenskra félagsmanna sinna gegn þessum fyrirtækjum vegna slæmrar meðferðar og launasvika, en í gær féll meingallaður dómur í Héraðsdómi þar sem réttur atvinnurekenda til að gera á hlut starfsfólks er varinn og rangt er farið með málavexti í veigamiklum atriðum. Lögmaður Samtaka atvinnulífsins steig einnig fram í júlí 2019 til varnar þessum fyrirtækjum og starfshátta þeirra.Samtök atvinnulífsins hafa á síðustu misserum ekki aðeins tekið upp hanskann fyrir þessi tilteknu fyrirtæki heldur hafa þau einnig beitt sér kröftuglega gegn hertum viðurlögum við launaþjófnaði og annarri brotastarfsemi á íslenskum vinnmarkaði. Þetta hafa samtökin gert með opinberum greinarskrifum formanns SA gegn baráttu Eflingar fyrir nauðsynlegum umbótum í málinu og með þrýstingi bak við tjöldin gegn lagasetningarvinnu á vegum Félagsmálaráðuneytisins.Hin ástríðufulla vörn Samtaka atvinnulífsins fyrir brotafyrirtæki á íslenskum vinnumarkaði, jafnvel í tilvikum þar sem fyrirtækin eru ekki innan vébanda SA og almennt talin tilheyra neðri lögum vinnumarkaðarins, seilist langt og telst til tíðinda. Á sama tíma berast fregnir af úrsögnum stórra og íslenskra iðnfyrirtækja úr SA og stofnun nýrra samtaka veitingafyrirtækja sem ekki una sér innan SA.Efling hefur margítrekað bent á að brotastarfsemi er meinsemd sem skaðar vinnumarkaðinn í heild. Fæstir atvinnurekendur sjá hag sinn í launasvikum og illri meðferð fólks, og undirboð einstakra brotafyrirtækja leiða til skekktrar samkeppnisstöðu. Vangreidd laun lenda á Ábyrgðarsjóði launa sem fjármagnaðar er af öllum atvinnurekendum. Staðreyndir um umfangsmikinn launaþjófnað og illa meðferð á aðfluttu vinnuafli á Íslandi eru álitshnekkir fyrir atvinnulífið í heild.Svo virðist sem Samtök atvinnulífsins séu nú á félagsmannaveiðum hjá þeim sem setja markið lægst og hafa hingað til hafa staðið utan heildarsamtaka vinnumarkaðarins. Með því að stilla sér upp í sérstakri varnarstöðu fyrir brotafyrirtæki og áframhaldandi refsileysi gegn brotastarfsemi eru Samtök atvinnulífsins að verja botninn.Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður EflingarBirt á visir.is 25.02.2021