Dagsferðir Eflingar í Borgarfjörð 28. ágúst og 4. september 2021

18. 05, 2021

[et_pb_section fb_built=“1″ _builder_version=“3.22″ custom_padding=“0px|||||“][et_pb_row _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ custom_padding=“0px|||||“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text _builder_version=“4.9.1″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“]

Erum byrjuð að bóka í dagsferðir, skráning mun standa yfir fram á sumar eða eins lengi og pláss leyfir. Félagsmenn geta bókað einn gest með sér, greiða þarf fyrir gestinn en hann fær frítt ef hann er undir 14 ára aldri. Verð er 6.000 kr. á mann.

Þar sem fella þurfti niður dagsferðirnar í fyrra vegna Covid stefnum við á að endurtaka sama ferðaplan í lok sumar.

Hin árlega dagsferð Eflingar verður í lok sumars og að þessu sinni farið í Borgarfjörð. Hægt er að velja um tvær ferðadagsetningar, laugardaginn 28. ágúst eða laugardaginn 4. september.

Lagt verður af stað stundvíslega kl. 8:15 frá húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1. Mæting kl. 8:00.

  • Ekið sem leið liggur að Þingvöllum og þaðan inn á veginn yfir Uxahryggi sem er fáfarinn en falleg leið í Borgarfjörð. Meðal viðkomustaða í ferðinni verða Reykholt, Hraunfossar, Húsafell þar sem snætt verður nesti, geitabúið á Háafelli, Deildartunguhver og Hvanneyri. Ferðinni lýkur svo á Landnámssetrinu í Borgarnesi þar sem boðið verður upp á léttan kvöldverð og gestum gefst einnig kostur á að skoða Egilssögu- eða Landnámssýningu.
  • Þetta er einstakt tækifæri til að fara í skemmtilegt dagsferðalag, njóta útsýnis og fallegrar náttúru á sögufrægum slóðum með leiðsögn.
  • Áætluð heimkoma er undir kvöld. Hafa þarf í huga ef börn eru með að ferðin tekur u.þ.b. 12 klst.

Ferðalangar þurfa að hafa með sér nesti til dagsins, skjólgóðan fatnað og góða skó.

Skráning í ferðina er í síma 510-7500 eða með tölvupósti – orlof@efling.is, senda þarf upplýsingar um nafn og kennitölu. Athugið að skráning mun standa yfir eins lengi og sætaframboð leyfir og gesti þarf einnig að skrá sérstaklega.

Sjá nánari upplýsingar hér.

[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]