Orlofshús

Hvammur, Skorradal

Vesturland – Allt árið

  • Ein vika38.449 kr
  • Ein helgi 21.621 kr
  • Komutími 17:00
  • Brottför 12:00

Húsnæði

1 hús 160m2 6 herbergi 9 svefnpláss

Aðstaða

  • Sjónvarp
  • Gasgrill
  • Örbylgjuofn
  • Barnarúm
  • Barnastóll
  • Uppþvottavél
  • Þvottavél

Lýsing

Húsið stendur við skógi vaxið land við Skorradalsvatn. Húsið er á tveimur hæðum, á efri hæð eru 3 herbergi með tvíbreiðum rúmum ásamt einu barnarúmi. Önnur 3 herbergi eru með einstaklingsrúmum. Snyrting með sturtuaðstöðu er á efri hæð ásamt eldhúsi og stofu. Á neðri hæð er rúmgott baðherbergi með sturtu. Þvottavél á neðri hæð. Svefnpláss er fyrir níu. Sængur og koddar eru fyrir níu manns. Allur helsti útbúnaður fylgir þ.e. sjónvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld.

Sjá skilmála

Upplýsingar

Lykla þarf að nálgast á skrifstofu Eflingar, Guðrúnartúni 1. Afgreiðslutími 9:00 – 15:00 nema til 14.00 föstudaga.

ATH. GÆLUDÝR ERU VELKOMIN Í ÞENNAN BÚSTAÐ.

Tenglar

www.skorradalur.is

Leiga

Vikuverð 38.449kr. – Helgarleiga, 3 nætur 21.621 kr.

Annað

Góðar gönguleiðir eru í landinu í kring og mikil skógrækt. Gott pláss fyrir leik barna eða tjöld er fyrir neðan húsið. Sólpallur, grill og garðhúsgögn. Tilvalið er að labba niður að vatninu og kasta fyrir fisk. Hvammur er gamalt óðalsetur og mikil perla í orlofshúsaeign Eflingar.

Um 1 klst. tekur að keyra þangað frá Reykjavík eða um 94 km.

Skoða á Google maps: