Orlofshús

Svignaskarð – 78 fm

Vesturland – Allt árið

  • Ein vika38.449 kr
  • Ein helgi 21.621 kr
  • Komutími 17:00
  • Brottför 12:00

Húsnæði

10 hús 78m2 3 herbergi 7 svefnpláss

Aðstaða

  • Sjónvarp
  • Gasgrill
  • Örbylgjuofn
  • Barnarúm
  • Barnastóll
  • Uppþvottavél
  • Þráðlaust net
  • Heitur pottur

Lýsing

Húsin eru 10 talsins og eru um 78 fm.  Svefnherbergi eru þrjú, tvö hjónaherbergi og í báðum er tvíbreitt rúm, 160 cm og eitt herbergi með koju á þremur hæðum, neðsta kojan er 120 cm og tvær efri eru 80 cm. Eldhús og stofa eru í sama rýminu.  Garðhúsgögn og gasgrill á er pallinum. Gistirými, sængur og koddar eru fyrir sjö manns. Allur helsti útbúnaður fylgir þ.e. sjónvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld.

Sjá skilmála

Upplýsingar

Lyklar eru afhentir í Lyklabox – lyklanúmer kemur fram á samningi.

Til að sjá staðsetningu á korti smellið hér. 

ATH. GÆLUDÝR ERU BÖNNUÐ.

Tenglar

www.borgarbyggd.is

Leiga

Vikuverð 38.449 kr. – Helgarleiga, 3 nætur 21.621 kr.

Annað

Húsin tilheyra orlofsbyggð Svignaskarðs og er beygt út af þjóðvegi 1 við Langavatn og þar niður í orlofshúsabyggðina. Fallegt er á þessu svæði og landið kjarri vaxið. Margt fallegt er hægt að skoða allt um kring og má þá nefna Langavatn, Baulu við Bifröst og Hreðavatn en þar eru einstaklega fallegar gönguleiðir. Um 1 klst. og 15 mín. tekur að keyra frá Reykjavík en leiðin er um 107 km.

Skoða á google maps: