Orlofshús

Þingeyri – Aðalstræti 19, neðri hæð

Vesturland – Eingöngu sumarleiga

  • Ein vika30.121 kr
  • Ein helgi 0 kr
  • Komutími 17:00
  • Brottför 12:00

Húsnæði

1 hús 50m2 2 herbergi 5 svefnpláss

Aðstaða

  • Sjónvarp
  • Gasgrill
  • Örbylgjuofn
  • Barnarúm
  • Barnastóll
  • Þvottavél

Lýsing

Um er að ræða íbúð á neðri hæð í þriggja hæða einbýlishúsi, alls 50 fm. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús með borðkróki og baðherbergi með sturtu. Samtals eru fimm svefnstæði, í öðru herberginu eru tvö einbreið 90 cm rúm og í hinu er eitt 90 cm rúm. Auk þess eru tvö svefnstæði í svefnsófa í stofu. Auk þess eru tvö ferðarúm til staðar. Sængur og koddar og borðbúnaður er fyrir sex manns. Allur helsti útbúnaður fylgir, þ.e. sjónvarp, útvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld til þrifa. Aðgangur er að þvottavél í sameign. Inngangur er að framanverðu og á bakvið húsið er pallur, gasgrill og útihúsgögn. Nettenging er í húsinu.

Ath. að hvorki er heitur pottur né uppþvottavél í íbúðinni.

Upplýsingar

Lyklabox – lyklanúmer kemur fram á samningi.

ATH. Gæludýr eru leyfð í þessu húsi. Um er að ræða leiguhús yfir sumartímann og þar má hafa gæludýr en gæta þarf þess að þrífa vel eftir dýrin og vanda sérstaklega alla umgengni. Gæludýr mega ekki valda öðrum gestum ónæði.

Tenglar

https://www.westfjords.is/

http://thingeyri.is/

Leiga

Vikuverð 30.121 kr.

Annað

Þingeyri er einstakur staður umlukinn náttúrufegurð allt í kring. Kaldbakur hæsti tindur Vestfjarða er á þessum slóðum og er fjallaskaginn oft nefndur Vestfirsku Alparnir. Hestaleiga er í nágrenninu og áhugaverðar gönguleiðir eru um slóðir Gísla Súrssonar í Haukadal. Hægt er að skjótast í dagsferð á Látrabjarg, skoða Dynjanda og suðurfirðina eða einfaldlega ganga meðfram
fallegri ströndinni sem liggur beint á móts við þorpið hinum megin við fjörðinn.

Skoða á google maps: