Gistiafslættir innanlands

Með niðurgreiðslu á gistingu innanlands er verið að mæta óskum þess félagsfólks sem ekki nýtir orlofshúsin en kaupa sér gistingu á ferðalögum innanlands. Félagið niðurgreiðir helming reiknings, þó að hámarki 10.000.- kr.

Sótt er um niðurgreiðslu á gistingu inn á Mínum síðum. Með umsókn þarf að skila inn löglegum reikningi frá viðurkenndum þjónustuaðila og á reikningnum þarf að koma fram nafn og/eða kennitala umsækjanda ásamt upplýsingum um dagsetningu gistinátta og greidd upphæð.

Með löglegum reikningi er átt við að viðskiptin þurfa að vera við aðila sem selja þessa þjónustu og gefa út reikninga sem uppfylla öll skilyrði opinberra aðila.

Gildir þetta um alla gistingu og einnig pakkaferðir innanlands sem innifela gistingu.

Nær þetta einnig yfir leigu á ferðavögnum með sömu skilmálum.

Athugið þó að afsláttur gildir ekki vegna orlofshúsa Eflingar né annarra stéttarfélaga.

Hámarksstyrkur er 10.000 kr. á hverju almanaksári. Umsókn verður að berast í síðasta lagi 31. janúar vegna síðastliðins almanaksárs.

Réttindi til styrkja / endurgreiðslna úr orlofssjóð byggist á eftirfarandi réttindum:

  • Félagfólk hafi greitt sl. 6 mán. samfellt og eigi punktainneign sem er til frádráttar hverju sinni.
  • Félagsfólk sem komið er á lífeyri eða örorku getur keypt allt sem tilheyrir miðasölu í 2 ár eftir starfslok (sbr. aðra sjóði) eða eiga tiltekinn punktafjölda