Launakjör og réttindi
Starfsfólk hjúkrunarheimila SFV
Stofnanasamningar eru sérstakir samningar sem gerðir eru á milli stéttarfélags og stofnunar og eru hluti af kjarasamningi. Í stofnanasamningi kemur fram hver grunnröðun starfa er og hvaða viðbótarforsendur eins og starfsreynsla, menntun og annað eru metnar til launa.
Þessi stofnanasamningur á við: Dvalarheimilið Ás, Eir, Grund,Hamrar hjúkrunarheimili, Hlíðabær, Hrafnista, Múlabær, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún, Sunnuhlíð (Vigdísarholt), Fríðuhús og Drafnarhús.
Þessi samningur er hluti af kjarasamningi Eflingar og SFV. Hér er hægt að sjá eldri kjarasamning 2015 -2019 ásamt breytingum 2019 -2023 sem urðu við síðustu samninga.
Hér má sjá stofnanasamninginn og fundargerð með samningnum.