Umsókn

Sálfræði eða félagsleg viðtalsmeðferð

Heilsu- og forvarnarstyrkir

Sækja um

Smelltu á hnappinn til að sækja um á Mínum síðum.

Lýsing

Greitt er allt að kr. 10.000,- fyrir hvert skipti þó aldrei meira en 75% af kostnaði í allt að 15 skipti á hverjum 12 mánuðum.

Greitt er fyrir meðferð hjá sálfræðingi, geðhjúkrunarfræðingi, félags- eða fjölskylduráðgjafa, fíkniráðgjafa, markþjálfa, MFM matarfíkniráðgjöf, Art therapy eða ADHD greining/meðferð fullorðinna, ráðgjöf hjá Lausninni. Styrkurinn er veittur vegna viðtalsmeðferðar hjá aðila sem ekki fellur undir afsláttarkort hjá Sjúkratryggingum Íslands og því ekki greitt fyrir viðtal hjá geðlækni.

Skilyrði

  • Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
  • Umsækjandi þarf að vera í starfi og að greiða iðgjald til Eflingar þegar sótt er um styrk. Þó má sækja um í allt að þrjá mánuði eftir að félagsmaður hættir að greiða ef kvittun tekur til tímabils sem hann greiddi til Eflingar.
  • Þeir sem voru félagsmenn í Eflingu í a.m.k. 5 ár samfellt áður en þeir hættu vegna aldurs eða örorku, eiga rétt á styrkjum í allt að 24 mánuði eftir starfslok.
  • Styrkupphæðir miðast við félagsgjöld af lágmarkslaunum. Þeir sem eru í hlutastarfi og greiða lægra félagsgjald fá greitt miðað við hlutfall af þeirri upphæð
  • Réttur til styrkja fellur niður sé umsókn ekki skilað til sjóðsins innan 12 mánaða frá því réttur stofnast

Skila þarf umsóknum í síðasta lagi 20. hvers mánaðar til að vera öruggur með að fá greitt mánaðamótin á eftir. Ef 20. lendir á helgi þurfa umsóknir að berast í síðasta lagi á föstudegi þar á undan. Umsóknir sem berast á milli 21. og 31. hvers mánaðar eru greiddar út í kringum 10. næsta mánaðar.

Ath. sérstakur umsóknarfrestur er í desember.