12. tbl.: Skattkerfið hyglir hátekjufólki

10. 10, 2022

Út er komið nýtt tölublað af Kjarafréttum Eflingar, það 12. í röðinni.

Í tölublaðinu er fjallað um ósanngjarna dreifingu skattbyrðar í íslenska skattkerfinu, en skattbyrði var færð af hærri tekjuhópum yfir á þá tekjulægri og eignaminni á tímabilinu 1994 til 2018.

Hátekju- og stóreignafólk nýtur sérstakra skattfríðinda í formi fjármagnstekjuskatt sem er með mun minni álagningu en atvinnutekjur og lífeyri. Það er mjög óeðlilegt. Helstu tillögur til úrbóta eru útlistaðar.

Tölublaðið á PDF-formi.