5. tbl: Ísland og Sviss með hæsta framfærslukostnað í Evrópu

31. 03, 2022

Í 5. tbl. Kjarafrétta eru sýnd nýleg gögn Eurostat um framfærslukostnað heimilanna á Íslandi í alþjóðlegum samanburði. Þar kemur fram að Ísland og Sviss hafa skipst á að hafa hæsta framfærslukostnaðinn á síðustu árum. Algengar neysluvörur heimilanna eru þannig óvenju dýrar hér á landi. Það eina sem er með ódýrara móti á Íslandi er rafmagn og húshitunarkostnaður. Lágtekjuhópar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir háu verði daglegra nauðsynja, svo sem matvöru og húsnæðis.

Lesa tölublaðið á PDF formi hér.

Framfærslukostnaður hæstur á Íslandi og í Sviss“ – frétt um efni tölublaðsins á Mbl.is 31. mars 2022.