11. sep Kl — 12:50

Framhaldsnám félagsliða – fötlun og geðraskanir

— Mímir, Höfðabakka 9 — 11. sep 2024

Fagnámskeið

Kennslutímabil: 11. september til 4. desember 2024
Kennsludagar: Miðvikudagar 13:00-16:00

Náminu er meðal annars ætlað að auka innsæi í þarfir og aðstæður einstaklinga með mismunandi skerðingar sem leiða til fötlunar. Réttindagæsla fatlaðra er kynnt og hlutverk og þjónusta hagsmunafélaga. Farið er í vettvangsferðir og unnið með þætti eins og skipulögð vinnubrögð og sjónrænt dagskipulag.

Kynntar eru leiðir til að styðja við og auka félagshæfni þjónustunotandans. Nemendur fá fræðslu um notkun rofabúnaðar og tölva. Þjónustuformið NPA er kynnt af notanda þjónustunnar.

Námið er ætlað félagsliðum.

Kennsla fer fram hjá Mími, Höfðabakka 9.

Námskeiðið er kennt á íslensku og er félagsmönnum að kostnaðarlausu.

Skráning er hjá Mími eða í síma 580 1800