Náms- og starfsráðgjöf

Fáðu aðstoð við að ákveða næsta skref

Það er ekki alltaf auðvelt að vita hvaða möguleikar eru í boði eða hvert næsta skref ætti að vera. Í náms- og starfsráðgjöf ræðir þú stöðuna við ráðgjafa og færð aðstoð við að finna hvaða leið hentar þér.

Þú getur meðal annars fengið aðstoð við að:

  • fara yfir reynslu þína og verkefni í starfi
  • skoða möguleika í náms- og starfsþróun
  • fá upplýsingar um raunfærnimat, það er að fá reynslu metna
  • uppfæra ferilskrá og kynningarbréf
  • skipuleggja næstu skref

Ráðgjöfin er ókeypis og fyrst og fremst ætluð fólki með stutta formlega skólagöngu. Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvað þú vilt gera, viðtalið hjálpar þér að fá skýrari mynd af stöðunni og möguleikunum.