
Úthlutunartímabil
Páskar
Umsóknartímabil er 15. – 23. janúar og verður opið fyrir umsóknir á mínum síðum á þessu tímabili. Úthlutað verður 25. janúar samkvæmt punktakerfi. Athugið að ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabilinu sótt er um, kerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu félagsmanna. Niðurstöður úthlutunar verða sendar í sms og greiðslufrestur er til og með 3. febrúar. Eftir það opnast bókunarvefurinn þann 4. febrúar kl. 9:00 fyrir alla félagsmenn með réttindi til að bóka skrá sig þá inn á mínar síður og bóka sjálf, í fyrstur kemur fyrstur fær fyrirkomulagi.
| Páskaúthlutun | 2025 |
|---|---|
| Umsóknartímabil hefst | 15. janúar kl 8:00 |
| Umsóknartímabil lýkur | 23. janúar kl 23:59 |
| Úthlutun lýkur | 28. janúar |
| Greiðslufrestur | 3. febrúar |
| Opið fyrir bókanir | 4. febrúar |
Sumar
Útleigutímabilið sumarið 2026 er frá 30. maí til 29. ágúst aðeins vikuleiga er í boði ýmist frá fimmtudegi til fimmtudags eða föstudegi til föstudags, eftir svæðum.
Umsóknartímabil fyrir sumarleigu 2025 er frá 14.febrúar. – 3. mars og hægt er að fylla út umsóknir á mínum síðum á þessu tímabili. Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi. Allir félagsmenn geta sótt um, það er eingöngu punktastaða umsækjenda sem ræður niðurstöðu úthlutunar. Niðurstöður úthlutunar verða senda sendar í sms og greiðslufrestur til og með 12.03.25. Eftir það verður önnur úthlutun fyrir félagsfólk með yfir 100 punkta. bókunarvefurinn opnar svo fyrir alla þá sem hafa réttindi til að bóka laus hús yfir sumarið þann 20.mars.
Athugið að þegar sótt er um í úthlutun á bókunarvef Eflingar inni á Mínum síðum, skal velja „orlofshús“ og svo „umsókn“.
Þegar orlofshús er bókað beint eftir að úthlutun er lokið, „í fyrstur nær fyrstur fær“, þá skal velja bóka og ganga strax frá greiðslu.
Fyrir nánari upplýsingar og aðstoð skal hafa samband við skrifstofu eða senda tölvupóst á orlof@efling.is
| Sumarúthlutun | 2026 |
|---|---|
| Umsóknartímabil hefst | 11.febrúar kl 8:00 |
| Umsóknartímabil lýkur | 11. mars kl 23:59 |
| Úthlutun lýkur | 12. mars |
| Greiðslufrestur | 20. mars |
| Önnur úthlutun fyrir félagsmenn með yfir 100 punkta | 20. mars |
| Opið fyrir bókanir félagsfólks með næga punkta | 30. mars kl. 8:00 |
Haust og vetur
Mikil aðsókn er í húsin yfir vetrartímann, sérstaklega í hús sem er stutt frá höfuðborgarsvæðinu. Það er venjulega fullbókað um helgar u.þ.b. mánuð fram í tímann, þannig að nauðsynlegt er að bóka tímanlega til að fá bústað á þeim tíma sem hentar.
Vetrartímabilið er frá 29.ágúst 2025 til 29.maí 2026. Þá er hægt að bóka bæði helgar- og vikuleigu. Þó er aðeins vikuleiga í boði yfir hátíðarnar, þ.e. jól og áramót, og svo páska. Jóla- og áramótavikurnar í ár eru annars vegar 22.12- 29.12.2025 og hins vegar 29.12.2025 – 05.01.2026. Bókanir fyrir jól og áramót hefjast 12. september kl 8:00. Aðeins er hægt að velja annað hvort jóla eða áramótaviku.
- Athugið breyttar reglur frá og með 1.nóvember 2023.
- Punktar eru teknir af félagsfólki í vetrarleigu.
- Einnig verður sú breyting gerð, að leigutakar
verða eiga punkta fyrir leigu til að geta leigt.
- Félagsmaður getur
ekki leigt hús með mínus punktastöðu.
| Vetrarúthlutun | 2026-2027 |
|---|---|
| Opnun vetrarbókana | 18. ágúst kl 8:00 |
| Opnun bókana um jól og áramót | 11. sept kl 8:00 |
| Opnun bókana eftir áramót | 2. nóv. kl 8:00 |
Punktakerfi og úthlutanir
Úthlutunartímabil eru tvö, yfir páskana og sumartímann. Leigutímabil yfir páska er ein vika frá miðvikudegi til miðvikudags og sumartímabilið hefst um mánaðarmót maí/júní og er 13 vikur og þá eru húsin leigð út í vikuleigu frá föstudegi til föstudags. Upplýsingar um umsóknartímabil og úthlutanir eru kynntar í upphafi árs á miðlum Eflingar. Skila þarf inn umsókn á auglýstum umsóknartímabilum.
Sérstakt orlofshúsakerfi Eflingar heldur utan um allar úthlutanir félagsins, þar safnast réttindi upp í formi punkta á hvern félagsmann og lífaldur getur jafnframt haft áhrif á úthlutanir. Fjöldi punkta markast af greiðslum til félagsins en reynt er að búa út sem mestan jöfnuð í kerfinu þannig að þeir sem hafa lægri tekjur eigi einnig góða möguleika á að fá úthlutað íbúðum og orlofshúsum.
Tölvukerfið úthlutar þannig að öllum umsóknum er raðað eftir punktaröð, þ.e. þeir umsækjendur sem hafa flesta punkta eru efst í röðinni og svo koll af kolli. Lífaldur ræður ef punktar tveggja eru jafnir þ.e. sá sem er eldri fær fyrst úthlutað. Kerfið les sig síðan í gegn um allar umsóknirnar og skoðar hvert val fyrir sig.
Aðeins ein úthlutun verður og er hún fyrir alla félagsmenn með réttindi. Þetta á bæði við um sumar- og páskaúthlutun. Punktastaða ræður niðurstöðu úthlutunar.
Fyrstur nær fyrstur fær
Eftir páskaúthlutun opnast bókunarvefurinn fyrir alla félagsmenn til að bóka þau hús sem enn eru laus. Eftir sumarúthlutun opnast bókunarvefurinn í tveimur skrefum, út frá punktainneign félagsmanna, til að bóka þau hús sem laus eru hverju sinni
Fyrst í 3 daga fyrir þá sem eiga 100 punkta og meira í kerfinu.
Fyrir alla félagsmenn með réttindi.
Punktasöfnun
Félagsmaður sem greiðir til Eflingar ávinnur sér 1 orlofspunkt á mánuði, óháð starfshlutfalli. Sá sem er í fullu starfi fær 2 til 3 orlofspunkta á mánuði, í samræmi við reiknireglu orlofssjóðs. Ekkert hámark er á hversu mörgum orlofspunktum er hægt að safna upp.
Ekki er hægt að leigja orlofshús nema að félagsmaður eigi fyrir því nægilega marga orlofspunkta. Mismunandi er eftir tímabilum, svæðum og lengd dvalar hversu margra orlofspunkta er þörf. Orlofspunktar dragast frá við leigu allt árið um kring.
Athugið að punktar segja aðeins til um forgang í úthlutun en koma ekki í stað greiðslu.
Bókanir utan úthlutunartímabila
Tímabil vetrarleigu hefst um mánaðamót ágúst/september og þá er bókað beint, engar umsóknir (að undanskildum páskum). Á vetrartímanum er leigutíminn sveigjanlegri og þá er hægt að bóka bæði helgar- og vikuleigu. Opnað er fyrir vetrarleigu í tveimur skrefum: um miðjan ágúst opnast fyrir bókanir fram að jólum og fyrsta virka dag í nóvember opnast fyrir bókanir eftir áramót og fram að sumartímabili. Opnað er fyrir bókanir á Mínum síðum kl. 9.00 á opnunardegi.
Félagsfólk getur farið inn á
Mínar síður til að bóka eða sent tölvupóst á
orlof@efling.is.

